Á bak við Kraftý Café eru tvær vinkonur með sameiginlega ástríðu fyrir sköpun og þá einföldu hugmynd að það ætti að vera auðveldara að gefa sér tíma til að skapa.
Okkur langaði að búa til stað sem við sjálfar myndum vilja heimsækja, stað þar sem hægt er að setjast niður með góðan kaffibolla, velja sér eitthvað skemmtilegt að gera og njóta stundarinnar, hvort sem þú kemur ein/n, með vinum, fjölskyldunni eða góðum hópi.
Þannig varð Kraftý Café til, staður þar sem kaffi, sköpun og góðar stundir mætast.
